Nýr Brooks Glycerin GTS 20 DNA Loft v3 er mjúkur og höggdempandi skór með Guiderails stuðningsramma.
20 ár í línunni og fær af þvi tilefni frábæra nýja uppfærslu.
Hlauparar hafa alltaf þörf fyrir að fara lengra og hlaupa hraðar og Glycerin er hannaður til þess, auk þess að minnka álagið á stoðkerfið.
Alveg ný hönnun á DNA Loft miðsólanum sem hefur verið mest höggdempandi miðsóli Brooks hingað til. Með því að blanda Nitrogen í DNA miðsólann fæst léttari miðsóli með meiri höggdempun, meiri styrk og meiri hraða. Brooks hefur í nokkur ár verið að hanna hina fullkomna blöndu af Nitrogen og DNA miðsólaefninu. Niðurstöður rannsókna hafa nú leitt til þess að nýr Glycerin er einn mest höggdempandi skór sem hefur verið mældur.
Nýr og meira höggdempandi ytri sóli er stöðugri og rúllar betur frá hæl að tá. Sólinn hentar frábærlega á malbik og annað hart undirlag.
Nýjasta kynslóðin af ‘Guiderails’ innanfótarstuðningnum er ólíkt öllu öðru á markaðnum. Hann var hannaður fyrst og fremst með hné í huga og hvernig hnjáliðirnir hreyfast miðað við fótinn. Við innanverðan hæl og framundir iljaboga er lengri og þéttari stuðningur en við utanverðan hæl er vægari og mýkri stuðningur til að halda hælnum, ökklanum og hnénu í samvinnandi stöðu.