Lýsing
Sokkarnir eru hannaðir með það í huga að ferðast með bíl eða flugvél en henta einnig þeim sem þurfa að sitja lengi. Það eru 5 svæði af mismunandi þrýsting (e. compression) sem eru annarsvegar létt (10-15 mmHg) og hinsvegar miðlungs (15-20 mmHg) til að hjálpa blóðflæði í fótum og koma í veg fyrir óþægindi við langvarandi hreyfingarleysi.
Hentar þeim sem :
- Eru með lélegt blóðflæði í fótum
- Glíma við segamyndun í djúpum bláæðum (e.Deep Vein Thrombosis)
- Fá reglulega krampa í fótleggi og síþreytu
- Fá verki í leggi og fætur














