Hallux Valgus (Bunion)

  • Hallux Valgus (Bunion)
  • Með sérgerðum innleggjum getum við breytt álaginu og minnkað einkenni
  • Er kúla við tábergslið stóru táar, áunnin en með vissum erfðaþáttum. Þó svo að Hallux Valgus sé algengast hjá konum uppúr miðjum aldri, sést það einnig hjá körlum og jafnvel hjá unglingum. Orsakir eru margar t.d. aflögun fótar og notkun á óhentugum skóm, við sjáum oft að þegar álagið er út á jarkann þola 2-4 liðurinn ekki þungann og ýta stóra liðnum út og mynda skekkju (Hallux valgus). Afleiðingin er að stóratáin fer að skekkjast í áttina að hinum tánum og það myndast beinhnúður á fyrsta tábergsliðinn og á honum bólga (Bunion) sem nuddast í skó og veldur óþægindum og verkjum í fætinum.
  • Meðferð við Hallux Valgus
  • Hlaupaskór eru til í breiddum og með mjúka yfirbyggingu og henta því vel fyrir Hallus valgus, getum sett sérgerð innlegg í hlaupaskóna en einnig tábergspúða á upprunarlega innleggið.
  • Götuskór eru til með teygjanlegri yfirbyggingu, við breytum upprunalegu innleggjunum eða setjum sérgerð innlegg í skóna.
  • Spelkur og táskiljur varna því að tærnar nuddast saman og valgi óþægindum.
  • Næturspelka réttir úr tánni á meðan þú sefur, hefur reynst mjög vel en sumir þola hana ekki.
  • Skósmiður getur víkkað út alla skó yfir hnúðnum til að draga úr núningnum.
  • Ef þú ert búin að prófa sérhæfðan skóbúna, sérgerð innlegg, breytingar á inniskóm, næturspelkur og dagspelkur, sjúkraþjálfun og þjálfun fóta í sandi og grasi .. og þú ert ennþá verulega verkjuð í kúluna mundi ég kannski íhuga Hallux valgus aðgerð.