Með sérgerðum innleggjum getum við breytt álaginu og minnkað einkenni
Lýsir sér þannig að það er kúla við tábergslið stóru táar, áunnin en með vissum erfðaþáttum.
Þó svo að Hallux Valgus sé algengast hjá konum uppúr miðjum aldri, sést það einnig hjá körlum og jafnvel hjá unglingum.
Orsakir eru margar t.d. aflögun fótar og notkun á óhentugum skóm, við sjáum oft að þegar álagið er út á jarkann þola 2-4 tábergsliðurinn ekki þungann og ýta stóra liðnum út og myndar skekkju (Hallux valgus).
Afleiðingin er að stóra táin fer að skekkjast í áttina að hinum tánum og það myndast beinhnúður á fyrsta tábergsliðinn og á honum bólga (Bunion) sem nuddast í skó og veldur óþægindum og verkjum í fætinum.
Meðferð við Hallux Valgus
Hlaupaskór eru til í breiddum og með mjúka yfirbyggingu og henta því vel fyrir Hallux valgus – getum sett sérgerð innlegg í hlaupaskóna en einnig tábergspúða á upprunalega innleggið.
Götuskór eru til með teygjanlegri yfirbyggingu, við breytum upprunalegu innleggjunum eða setjum sérgerð innlegg í skóna.
Spelkur og táskiljur varna því að tærnar nuddast saman og valdi óþægindum.
Næturspelka réttir úr tánni á meðan þú sefur, hefur reynst mjög vel en sumir þola hana ekki.
Skósmiður getur víkkað út alla skó yfir hnúðnum til að draga úr núningnum.
Ef þú ert búin að prófa sérhæfðan skóbúnað, sérgerð innlegg, breytingar á inniskóm, næturspelkur og dagspelkur, sjúkraþjálfun og þjálfun fóta í sandi og grasi .. og þú ert ennþá verulega verkjuð í kúluna myndi ég kannski íhuga Hallux valgus aðgerð.